Leiðsögn um sýninguna TEIKN

Sunnudaginn 10. mars kl. 15 verða Guðjón Ketilsson og Aðalsteinn Ingólfsson sýningarstjóri með leiðsögn um einkasýningu Guðjóns TEIKN sem opnuð var í safninu 15. febrúar sl. Verkin sem eru 8 talsins fjalla öll með einum eða öðrum hætti um tákn, táknmerkingu og „lestur“ í víðasta skilningi þessara orða. Listamaðurinn hefur unnið jöfnum höndum að gerð þrívíddarverka og teikninga eins og sjá má á sýningunni. Verk hans eru hvorttveggja í senn völundarsmíði og hugleiðingar um tilvist manns, þau spor sem hann markar sér í raunheimi með gjörðum sínum og þær aðferðir sem hann notar til að gera sig skiljanlegan í menningarlegu nærumhverfi sínu. Mörg helstu verka Guðjóns eru uppfull af vísbendingum, táknum og tilvitnunum sem mynda eins konar huglæg rými sem áhorfandinn gerist þátttakandi í og upplifir á eigin skinni. Verkin á sýningunni „Teikn“ eru einmitt þess eðlis.

Leiðsögnin er liður í Safnahelgi á Suðurnesjum sem fram fer nú í 11.sinn þar sem söfn setur og sýningar á svæðinu bjóða heim gestum og brydda upp á fjölbreyttri dagskrá af því tilefni. Það er því ærin ástæða til að taka rúntinn suður með sjó um helgina. Dagskrá Safnahelgar er að finna á safnahelgi.is

Gallery - Teikn