Fræðsla og leiðsögn

Tekið er vel á móti öllum gestum sem leggja leið sína á sýningar í Duus Safnahúsum og safnvörður veitir almennar upplýsingar um þá sýningar sem gestum standa til boða. Að auki er boðið upp á sérstakar leiðsagnir, sjá hér að neðan.

Leiðsagnir

Hægt er að panta leiðsögn fyrir hópa á opnunartíma og utan hans gegn greiðslu. Nánari upplýsingar í síma 420 3245 eða í gegnum netfangið duushus@reykjanesbaer.is

Nemendaleiðsagnir

Listasafn Reykjanesbæjar er virkur þáttur í menningarstarfsemi fyrir börn og unglinga og tekur á móti nemendum af öllum skólastigum eftir samkomulagi og veitir leiðsögn um sýningarnar. Pantanir eru í síma 421 6741 eða í gegnum tölvupóst helga.thorsdottir@reykjanesbaer.is

Listamannsleiðsagnir

Í tengslum við hverja sýningu sem haldin er í Listasal er boðið upp á listamannaleiðsögn einu sinni á sýningartímanum. Hún er auglýst sérstaklega hér á vefnum, á Facebooksíðu Listasafnsins og í fjölmiðlum í hvert sinn.