Blossi

Sýningin Blossi var opnuð fimmtudaginn 31. ágúst kl. 18:00 ásamt öðrum sýningum í Duus Safnahúsum í tengslum við Ljósanótt.

Á sýningunni eru málverk eftir Sossu og innrömmuð ljóð eftir Anton Helga Jónsson sem snúast um ástar- og hlutverkaleiki kynjanna.

Sossa og Anton Helgi Jónsson eiga það sameiginlegt að hafa bæði velt fyrir sér margbreytileika mannlífsins, hún í málverkum og hann í ljóðum. Með bros á vör og lífsgleðina að leiðarljósi hafa þau dregið upp myndir af alls konar fólki í verkum sínum. Blossi er samsýning þeirra á málverkum og ljóðum sem snúast um ástar- og hlutverkaleiki kynjanna.

Sossa hefur áður málað myndir út frá ljóðum úr bókum Antons en málverkin á þessari sýningu urðu til eftir að listamennirnir ákváðu að vinna saman að sýningu með erótískum undirtóni. Efniviðinn í málverkin hefur Sossa sótt í ljóð eftir Anton sem fæst hafa komið fyrir augu annarra og sum reyndar orðið til upp úr samstarfi þeirra. Málverkin eru ekki hugsuð sem myndskreyting við ljóðin heldur verk sem sprottin eru af sama eða svipuðum blossa. Þannig vilja listamennirnir láta reyna á það hvernig málverk og ljóð geta hvort á sinn hátt miðlað heitum tilfinningum; ástarblossa milli karls og konu, karls og karls, konu og konu. Hverju miðlar málverkið? Hverju miðlar ljóðið? Hvað er mynd í ljóði? Hvað er ljóð í mynd?

Sýningin stendur til 15. október.