Uppspretta

Sumarið 2013 var gömlum vatnstanki í eigu bæjarins breytt í útilistaverk með aðstoð listhóps að nafni Toyistar. Toyistasamtökin eru alþjóðlegur listhópur 28 félaga með varnarþing í Hollandi en þrír listamannanna eru íslenskir og búa í Reykjanesbæ. Hópurinn vinnur við að endurbæta gömul mannvirki og breyta þeim í listaverk og hefur unnið við svipuð verkefni víða og hér í viðhengi má sjá dæmi um tank sem málaður var í Emmen í Hollandi og afhjúpaður 2010. Tankurinn er staðsettur á vinsælu útivistasvæði í Reykjanesbæ og gæti orðið með þessari breytingu til mikillar prýði og auk þess góður segull fyrir ferðamenn.

Nauðsynlegt var að gera ráðstafanir vegna tanksins hvort eð var, þar sem hann er staðsettur á vinsælu útivistasvæði í bænum og var orðinn til mikillar óprýði. Þarna var hægt að slá tvær flugur í einu höggi, vinna umhverfinu gagn um leið og búinn var til einstakur listgripur með alþjóðlega tilvísun.

Vatnstankurinn er orðinn til mikillar prýði og getur með góðri kynningu orðið einstakur segull í alþjóðlegri ferðaþjónustu á svæðinu. Þarna tengjast myndlist og umhverfisvernd á skemmtilegan hátt sem vekur áhuga allra og þá um leið ferðamanna og umhverfisferðamennska er nýr þáttur sem mætti verða stærri. Einnig tengist þetta verkefni Toyistanna öðrum svipuðum verkefnum í öðrum löndum og þannig getur orðið til einhvers konar leiðangur milli staðanna og Reykjanesbær orðið einn af áfangastöðunum á þeirri vegferð.
Tankurinn, sem afhjúpaður var á Ljósanótt 2013, er algjörlega einstakt verk í íslenskum veruleika en um leið hluti af alþjóðlegri keðju umhverfislistaverka og þannig er Ísland orðið enn þekktara en áður fyrir jákvæðni í garð umhverfisverndar.