Umhverfismeðvitund – endurnýting – endurnotkun - endurgerð

Sýning í Duus Safnahúsum í Reykjanesbæ 30. ágúst – 4. nóvember 2018. Sýningin opnar á Ljósanótt.

Sýningin er samvinnuverkefni HANDVERKS OG HÖNNUNAR og Listasafns Reykjanesbæjar.

HANDVERK OG HÖNNUN og Listasafn Reykjanesbæjar munu í haust standa fyrir sýningu fengið hefur vinnuheitið „Framhaldslíf“. Allir hönnuðir, handverks- og listiðnaðarfólk geta sótt um þátttöku.

Meginþema þeirrar sýningar er: Umhverfismeðvitund - Endurnýting – Endurnotkun – Endurgerð. Með þessari sýningu er verið að hvetja hönnuði og handverksfólk til að senda inn verk sem eru unnin á umhverfisvænan hátt úr endurunnu hráefni.

Sýningarstjóri er Ragna Fróða.

Skilafrestur: Áhugasamir sendi inn lýsingu á verki og/eða mynd sem fyrst en í síðasta lagi mánudaginn 11. júní 2018 á handverk@handverkoghonnun.is

Nánari upplýsingar:  Ragna Fróða:  ragnafroda@gmail.com og HANDVERK OG HÖNNUN, Sunneva Hafsteinsdóttir: sunneva@handverkoghonnun