Úlfatími rennur brátt sitt skeið

Sunnudagurinn 23. apríl er síðasti sýningardagur sýningarinnar ÚLFATÍMI þar sem sýnd eru verk systranna Söru og Svanhildar Vilbergsdætra en sýningin hefur hlotið mjög góðar viðtökur.

Titill sýningarinnar er sóttur í smiðju sænska kvikmyndaleikstjórans Ingmar Bergman sem talaði um Úlfatímann sem tímann milli nætur og dagrenningar, þegar flestir deyja, svefninn sé hvað dýpstur og martraðir sem raunverulegastar. Þá sæki mestur ótti að þeim sem ekki geti sofið og bæði draugar og drýsildjöflar fara mikinn.

Þær systur eru þekktar fyrir litskrúðug verk sín sem segja endalausar sögur, bæði þessa heims og annars og nú bregður við nýjum tóni sem ekki hefur sést áður.  Sara og Svanhildur mála sem fyrr saman, sömu verkin og á sýningunni Úlfatími má sjá 20 olíuverk sem flest eru ný og hafa ekki sést áður. Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson.