Þrjár nýjar sýningar opnaðar í Duus Safnhúsum
Á föstudag kl. 18 verða þrjár nýjar sýningar opnaðar í Duus Safnahúsum, tvær á vegum Listasafns Reykjanesbæjar og ein á vegum Byggðasafns Reykjanesbæjar.
Listasafn Reykjanesbæjar opnar sýningu á verkum Guðjóns Ketilssonar. Sýningin ber heitið TEIKN og sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson. Í sýningarskrá má m.a. sjá texta eftir Sjón. Listamaðurinn og sýningarstjórinn verða með leiðsögn sunnudaginn 10.mars kl.15.
Við sama tilefni verður opnuð í Bíósal sýning á ljósmyndum úr safneign Listasafnsins. Sýningin ber heitið LJÓS OG TÍMI og sýningarstjóri er Inga Þórey Jóhannsdóttir.
Einnig opnar Byggðasafn Reykjanesbæjar ljósmyndsýninguna FÓLK Í KAUPSTAÐ. Á sýningunni gfur að líta örlítið sýnishorn af ljósmynum í eigu Byggðasafnsin. Þema sýningarinnar er fólk og fjölbreytt mannlíf í kaupstaðnum Keflavík og nágrannbænum Njarðvík á árunum 1944 til 1994. Sýningarstjóri og ljósmyndari verða með leiðsögn sunnudaginn 10.mars kl.14.
Safnið er opið alla daga frá 12-17 og sýningarnar standa til 22.apríl.