ÞAÐ SEM EFTIR STENDUR

Endurspeglun frá dreifbýli Íslands

Gillian Pokalo er bandarískur listamaður sem hrifist hefur af íslenskri náttúru. Verkin sem nú eru til sýnis í Stofunni í Duus Safnahúsum eru afrakstur tveggja ferða hennar til Íslands í apríl 2016 og mars 2017.  Gillian segir sjálf um verkin sín: „Vinnuferlið hefst á ljósmyndum en myndefni þeirra gefur innsýn inn í hluti og staði sem hafa verið yfirgefnir. Mannvirki sem byggð eru til að standast tímans tönn, en eru síðar yfirgefin, segja mikið um mannlegt ástand okkar og kveikja spurningar um hver við erum og hver arfleifð okkar verður.  Að lokum endurheimtir náttúran ávallt mannvirkin sem við byggjum, það er merki um tímabundið eðli veruleikans. Vinnuferli prentunar er svipað, blekið sem verður eftir er sönnunargagn um prentunina, líkt og sönnunargögnin um byggð manna eru mannvirki þeirra.  Prentunin gerir mér kleift að prenta ákveðið yfirgefið mannvirki mörgum sinnum en þannig getur mannvirkið sagt sögu sína á marga vegu.“

 Gillian útskrifaðist frá Moore College of Art&Design í Fíladelfíu árið 2005 og tveimur árum síðar útskrifaðist hún með kennsluréttindi frá sama skóla. Pokalo starfar sem myndlistakennari við Plymouth Friends School í Plymouth Meeting og einnig í Main Line Art Center í Haverford, Pennsylvaníu.  Pokalo hefur haldið fjölmargar sýningar í Bandaríkjunum og er þetta í annað skipti sem hún sýnir verk sín á Íslandi. Listamaðurinn verður með leiðsögn sunnudaginn 9.júlí kl.14.00 sem er jafnframt síðasti dagur sýningarinnar.