Teikn, valin ein af sýningum ársins 2019

Sýning Guðjóns Ketilssonar, Teikn, var valin ein af sýningum ársins 2019 af myndlistarrýni Morgunblaðsins, Aldísi Arnardóttur, og Einari Fal Ingólfssyni, umsjónarmanni menningarefnis í blaðinu.

Um sýninguna segja þau:

"Sýningin var sett saman út átta verkum sem fjölluðu með einum eða öðrum hætti um tákn, táknmerkingu og „lestur“, í víðum skilningi, í þrívíðum verkum sem teikningum. „Guðjón er einstaklega hagur listamaður en beitir handverkinu ætíð á hugvitsamlegan hátt til að þjóna útfærslu hverrar hugmyndar. Á sýningunni má til að mynda sjá teiknaðar og afar persónulegar útgáfur Passíusálmanna, „ljóð“ mótuð úr trjágreinum, skúlptúra úr húsgögnum og bókum, og
mikla veggteikningu; og saman mynda verkin heildstæðan og hrífandi táknrænan heim."

Gallery - Teikn