Sögur og ævintýri

Listahátíð barna

Listahátíð barna – stærðarinnar samstarfsverkefni

Listahátíð barna, sem er hryggjarstykkið í Barnahátíð í Reykjanesbæ,  verður nú  haldin hátíðleg í 7. sinn. Listahátíðin er samvinnuverkefni  Listasafns Reykjanesbæjar, allra 10 leikskóla bæjarins og allra 6 grunnskólanna. Hátíðin hefur vaxið og eflst með hverju ári og segja má að hún hafið orðið kveikjan að þeirri stóru barnahátíð sem nú er haldin í Reykjanesbæ þar sem virðing fyrir börnum, störfum þeirra og þörfum er höfð að leiðarljósi. Listsýningar tengdar hátíðinni eru staðsettar víða um bæjarfélagið. Verk leikskólabarnanna eru staðsett í sölum Duushúsa undir heitinu „Sögur og ævintýri“ og verk grunnskólabarnanna eru staðsett í fyrirtækjum og verslunum undir heitinu „Listaverk í leiðinni.“ Hátíðin stendur yfir frá 10. – 24. maí.

Sögur og ævintýri

Á hverju ári er ný yfirskrift valin fyrir sýningu leikskólabarnanna. Ýmis viðfangsefni hafa orðið fyrir valinu m.a. vináttan, hafið og himinninn. Í ár urðu sögur og ævintýri fyrir valinu. Yfirskriftin leggur grunn að margvíslegu námi barnanna stóran hluta úr vetri. Kafað er ofan í viðfangsefnið frá ýmsum sjónarhornum og afraksturinn birtist í skúlptúrum, málverkum, myndbandsverkum og textaverkum sem settur er fram í formi listsýningar í samstarfi við Listasafnið. Úr verður fullskapaður ævintýraheimur sem lætur hvorki fullorðna né börn ósnortin.

Sýningin er opnuð með formlegum hætti í Duushúsum fimmtudaginn 10. maí kl. 10.30 að viðstöddum elstu börnum leikskólanna sem syngja þar söngva sérstaklega valda í tilefni sýningarinnar. Þessi viðburður markar einnig upphaf Barnahátíðar í Reykjanesbæ sem stendur hæst dagana 12. og 13. maí. Listahátíðin sjálf stendur hins vegar til 24. maí. Daglega á meðan á henni stendur koma leikskólarnir í heimsókn og standa fyrir stuttri skemmtidagskrá sem er öllum opin.

Listaverk í leiðinni

Yfirheiti sýningar grunnskólabarnanna felur í sér fjölbreytta staðsetningu á verkunum. Listaverkin eru líka af öllu tagi og þar má sjá gott yfirlit yfir vinnu vetrarins, margvísleg vinnubrögð og óþrjótandi sköpunargleði barnanna í bænum. Þarna var ekki unnið undir einu yfirheiti heldur fékk fjölbreytnin að ráða ferðinni og afraksturinn er ótrúlegur, við sjáum verk frá öllum grunnskólunum frá ýmsum árgöngum. Eins og heiti sýningarinnar gefur til kynna má sjá listaverkin víðs vegar um bæinn, á þeim stöðum sem fólk á leið um í ýmsum erindagjörðum s.s. í stórmörkuðum, á kaffihúsi, göngugötum o.fl. slíkum stöðum.

Sýningin er opnuð með formlegum hætti föstudaginn 11. maí kl. 14:00 í Krossmóa (Nettó) þar sem hægt verður að skoða sýnishorn frá öllum skólunum.

Báðar sýningarnar standa yfir frá 11. – 24. maí og opnunartíminn fer eftir opnunartíma þeirra stofnunar sem viðkomandi sýning er staðsett í.