Síðasta sýningarhelgi - leiðsögn ljósmyndara og myndataka

Nú er komið að síðustu sýningarhelgi þessarar skemmtilegu sýningar sem opnuð var á Ljósanótt.

Við ætlum að ljúka þessu með því að ljósmyndarinn Björgvin Guðmundsson, tekur á móti gestum í salnum sunnudaginn 8. nóvember kl. 14:30 og býður upp á létt spjall um verkefnið.

Kl. 15 - 16 myndataka fyrir þá sem enn hafa ekki látið taka af sér mynd.
Kl. 16 - 17 er hægt að nálgast myndir sem þegar hefur verið greitt fyrir, gegn framvísun greiðslukvittunar.

Á sama tíma verður ljósmyndarinn Vigdís Viggósdóttir á staðnum, en sýningu hennar, HEIMASÆTAN, í anddyri Duus Safnahúsa lýkur einnig á sunnudag.

Verkið samanstendur af 6 ljósmyndum og 6 örsögum og
fjallar um ást í meinum, líf í felum og innri baráttu.

Viddý útskrifaðist úr Ljósmyndaskólanum 2014. 

Þetta verk varð til á listasetrinu Bæ á Höfðaströnd í Skagafirði núna í vor. Myndirnar eru teknar í eyðibýlinu Miðhúsum þar sem örsögur leyndust í hverju skúmaskoti.

Gallery - Andlit bæjarins