Síðasta sýningarhelgi Framtíðarminnis

Sunnudaginn 6. nóvember lýkur sýningunni Framtíðarminni sem opnuð var á Ljósanótt í september. Um er að ræða samsýningu fjögurra listamanna, þeirra Doddu Maggýjar, Elsu Dórotheu Gísladóttur, Ingarafns Steinarssonar og Kristins Más Pálmasonar.

Tengingar við ræktun, plöntur, kerfi og tíma eru áberandi í listaverkum þeirra en öll hafa þau á einhverju skeiði lífs síns búið á Suðurnesjum. Útkoman og miðlarnir sem þau vinna með eru þó afar ólík.   Á sýningunni eru m.a. málverk, teikningar, gróður-innsetning og vídeóverk. Sýningarstjóri er Inga Þórey Jóhannsdóttir.

Safnið er opið frá 12 -17 alla daga.