Listviðburður Stephen Lárusar Stephen

Myndlistarmaðurinn Stephen Lárus Stephen stendur fyrir myndlistargjörningi í listasal sunnudaginn 11. mars kl. 13:30 - 16:30. Sjálfur kallar hann viðburðinn "A Camera Painting Event" og munum við sjá listamanninn að störfum með lifandi módel þar sem ýmsar uppstillingar verða reyndar. Um verkefnið segir Stephen: "This project centres on my interest in the use of optics throughout the history of painting, and also the ways in which  photography influences this." Viðburðurinn er öllum opinn og er hluti af dagskrá Safnahelgar á Suðurnesjum. Í salnum er fyrir sýningin Hjartastaður þar sem Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur verður með leiðsögn þennan sama dag kl. 15.