Listahátíð barna 2014

Listahátíð barna

Listahátíð barna, sem nú verður haldin hátíðleg í 9. sinn, er samvinnuverkefni  Listasafns Reykjanesbæjar, allra 10 leikskóla bæjarins, allra 6 grunnskólanna, Tónlistarskólans og dansskólanna. Hátíðin hefur vaxið og eflst með hverju ári og segja má að hún hafið orðið kveikjan að þeirri stóru barnahátíð sem nú er haldin í Reykjanesbæ þar sem virðing fyrir börnum, störfum þeirra og þörfum er höfð að leiðarljósi. Listsýningar tengdar hátíðinni eru staðsettar víða um bæjarfélagið. Verk leikskólabarnanna eru staðsett í sölum Duushúsa undir heitinu „Afmæli“ og verk grunnskólabarnanna eru til sýnis í Kjarna (þar sem bókasaafnið var) og t í fyrirtækjum og verslunum undir heitinni „Listaverk í leiðinni.“  Nemendur tónlistarskólans og dansskólanna koma fram á ýmsum viðburðum hátíðarinnar og spila þar sífellt stærra hlutverk. Til dæmis koma þeir fram á sérstakri Hæfileikahátíð grunnskólanna sem fram fer í Stapa föstudaginn 9. maí kl. 10.00.

 

Afmæli
Á hverju ári er ný yfirskrift valin fyrir sýningu leikskólabarnanna. Ýmis viðfangsefni hafa orðið fyrir valinu m.a. vináttan, hafið, himinninn, sögur og ævintýri og umhverfið. Í ár lá beinast við að halda afmæli þar sem Reykjanesbær fagnar 20 ára afmæli á árinu.   Yfirskriftin leggur grunn að margvíslegu námi barnanna stóran hluta úr vetri. Kafað er ofan í viðfangsefnið frá ýmsum sjónarhornum og afraksturinn í ár birtist í skúlptúrum, ljósmyndum og textaverkum sem sett eru fram í formi listsýningar í samstarfi við Listasafn Reykjanesbæjar. Börnin hafa skapað veisluföngin, veitingar, borðbúnað, gjafir og ýmislegt fleira. Úr verður fullskapaður ævintýraheimur sem lætur hvorki fullorðna né börn ósnortin.

 

Sýningin er opnuð með formlegum hætti í Duushúsum fimmtudaginn 8. maí kl. 10.30 að viðstöddum elstu börnum leikskólanna sem syngja þar söngva sérstaklega valda í tilefni sýningarinnar. Þessi viðburður markar einnig upphaf Barnahátíðar í Reykjanesbæ sem stendur hæst dagana 10. og 11. maí. Listahátíðin sjálf stendur hins vegar til 22. maí. Daglega á meðan á henni stendur koma leikskólarnir í heimsókn og standa fyrir stuttri skemmtidagskrá sem er öllum opin.

 

Listaverk í leiðinni

 

Yfirheiti sýningar grunnskólabarnanna felur í sér fjölbreytta staðsetningu á verkunum. Listaverkin eru líka af öllu tagi og þar má sjá gott yfirlit yfir vinnu vetrarins, margvísleg vinnubrögð og óþrjótandi sköpunargleði barnanna í bænum. Þarna var ekki unnið undir einu yfirheiti heldur fékk fjölbreytnin að ráða ferðinni og afraksturinn er ótrúlegur, við sjáum verk frá öllum grunnskólunum frá ýmsum árgöngum. Eins og heiti sýningarinnar gefur til kynna má sjá listaverkin víðs vegar um bæinn, á þeim stöðum sem fólk á leið um í ýmsum erindagjörðum s.s. í stórmörkuðum, á kaffihúsi, göngugötum o.fl. slíkum stöðum. Sameiginlegur sýningarstaður er í Kjarna (þar sem bókasafnið var áður til húsa) og þar verður sýningin opnuð með formlegum hætti miðvikudaginn 7.maí kl. 13:00