Leiðsögn um sýninguna "Líkami, efni og rými"

Þær Eygló Harðardóttir myndlistarmaður og Inga Þórey Jóhannsdóttir sýningarstjóri verða með leiðsögn um nýopnaða sýningu Listasafns Reykjanesbæjar „Líkami, efni og rými“ sunnudaginn 25.nóvember kl. 15 í sýningarsal safnsins í Duus Safnahúsum.

Á sýningunni leiða saman hesta sína þær Eygló, Ólöf Helga Helgadóttir og Sólveig Aðalsteinsdóttir. Það sem helst tengir þær saman er afar sterk tilfinning fyrir efniskennd og hvernig verk þeirra hverfast um lögmál myndlistar, forma, lita, rýmis og tíma. Pappír er ríkjandi í verkum þeirra allra, en nálgunin við efnið er afar ólík.

Í verkum Eyglóar sem rannsakað hefur virkni lita, hefur jaðar efnisins jafn mikið gildi og miðjan og má oft greina smit lita í umhverfinu þar sem verkin eru sýnd. Í verkum Ólafar Helgu eru samsetningar og huglægar tengingar á skjön við það sem búast má við. Efnið sem hún notar sem uppistöðu í verk sín hefur sögulega merkingu sem er mjög persónuleg, en í höndum hennar umbreytist það í þekkjanlega hluti. Verk Sólveigar tengjast hugmyndafræðilegri list. Hún hefur í sumum tilfellum kortlagt umhverfi sitt og minningar með líkamlegum mælieiningum. Verk Sólveigar tengjast kjarna efnisins, miðju rýmisins og hafa sterk tengsl við tímann.

Ókeypis aðgangur er á leiðsögnina og eru allir hjartanlega velkomnir. Sýningin stendur til 13. janúar 2019 og safnið er opið alla daga frá 12.00-17.00.