Leiðsögn sýningarstjóra um MANNFÉLAGIÐ

Sunnudaginn 21. ágúst kl. 15:00 verður Aðalsteinn Ingólfsson sýningarstjóri með leiðsögn um sumarsýningu listasafnsins, Mannfélagið, en sýningunni lýkur einnig þennan dag. 

Á sýningunni eru verk eftir 21 listamann, aðallega málverk, en einnig er þar að finna ljósmyndaverk og skúlptúr. Elstur þessara listamanna er Ásgrímur Jónsson (1876-1958), en yngstur Aron Reyr (f. 1974). Listamennirnir eiga það sammerkt að vinna með margháttaðar birtingarmyndir mannlegra samskipta, ýmist beint og umbúðalaust eða með táknrænum hætti. Sjónarhorn þeirra getur verið einkalegt, faglegt eða félagslegt.

Flestar myndanna á sýningunni eru fengnar frá tveimur helstu söfnum landsins, auk þess sem listamennirnir sjálfir hafa lánað nokkrar myndir sem ekki hafa fyrr komið fyrir almennings sjónir. Á sumarsýningunni eru verk eftir Aðalheiði  S. Eysteinsdóttur, Aron Reyr, Ásgeir Bjarnþórsson, Ásgrím Jónsson, Baltasar, Barböru Árnason, Birgi Snæbjörn Birgisson, Finn Jónsson, Gunnar Karlsson, Gunnlaug Scheving, Helga Þorgils Friðjónsson, Hlaðgerði írisi, Jóhönnu Kristínu Yngvadóttur, Karen Agnete Þórarinsson, Karólínu Lárusdóttur, Söru og Svanhildi Vilbergsdætur, Sigríði Melrós Ólafsdóttur, Sigurð Guðmundsson, Stefán Boulter, Tryggva Magnússon og Þórdísi Aðalsteinsdóttur. Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson

Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar er í Duus Safnahúsum og þar er opið alla daga frá l. 12.00-17.00.