Leiðsögn Rögnu Fróða og Þráðlausar með smiðju

Gamalt verður nýtt í heilsu- og forvarnaviku Suðurnesja
Leiðsögn og smiðja í Duus Safnahúsum

Með bættri nýtingu og endurvinnslu hluta stuðlum við að betri heimi með minni sóun og aukinni umhverfisvitund. Listasafn Reykjanesbæjar vill leggja sitt af mörkum í þessum efnum og býður í samstarfi við HANDVERK OG HÖNNUN upp á leiðsögn og smiðju í tengslum við sýninguna „Endalaust“ í Duus Safnahúsum. Sýningin inniheldur einungis verk úr endurunnum efnivið, þar sem hlutum sem annars yrði mögulega hent, er gefið nýtt og betra líf. Um er að ræða fjölbreytt og ólík viðfangsefni og alls 20 hönnuðir taka þátt í sýningunni.

Laugardaginn 6.október klukkan 14 hefst leiðsögn Rögnu Fróða sýningarstjóra um sýninguna þar sem hún segir frá hugmyndafræði hennar og tilurð verkanna. Leiðsögnin er öllum opin óviðkomandi því hvort fólk tekur þátt í smiðju.

Komið og gerið gamalt nýtt

Á sama tíma hefst smiðja í Bíósal Duus Safnahúsa sem ber yfirskriftina „Gamalt verður nýtt“ og stendur hún til kl. 16. Það er textílhópurinn „Þráðlausar“ sem stýra smiðjunni sem er ætluð öllum aldurshópum þar sem vefnaður og endurvinnsla koma saman til að gefa gömlum og gleymdum hlutum nýtt líf. Þátttakendur fá tækifæri til að endurbæta eða breyta einum hlut sem þeir finna heima hjá sér. Stóll, myndarammi eða jafnvel flíkur eru tilvaldir hlutir en einnig má nota hugmyndarflugið og koma með alls konar hluti sem er hægt að vefa inní. Garn og efni verður til staðar sem notað verður til að vefa með.

Leiðbeinendur í smiðjunni eru þær Margrét Katrín Guttormsdóttir og Ragnheiður Stefánsdóttir sem saman mynda textílhópinn Þráðlausar. 

Þær eru báðar útskrifaðar úr textíldeild Myndlistaskólans í Reykjavík og stunda nám við Listaháskóla Íslands í hönnunardeild. 

Þráðlausar vinna að því að búa til textílverk og endurbæta gömul húsgögn með vefnaði úr endurnýttum textíl.