Fréttatilkynning – Jafnvægið milli hins náttúrulega og hins tilbúna.
Sýning á 7 kjólum Örnu Atladóttur fatahönnuðar opnar á vegum Listasafns Reykjanesbæjar í Gryfjunni í Duus Safnahúsum fimmtudaginn 3. september n.k. og verður ein af Ljósanætursýningum safnsins. Arna fæddist í Reykjavík árið 1984 en ólst upp frá 6 ára aldri í Reykjanesbæ. Hún stundaði nám í textíl við Textilskolen í Holte, Danmörku og fór síðar í nám í fatahönnun í Instituto Europa di Design í Madríd.
Á þessari fyrstu einkasýningu Örnu sem nefnist „The balance between natural and artificial“ notast hún við mannshár og hrosshár í textíl ásamt perlum og kristöllum. Innblástur sýningarinnar eru þær kröfur sem samfélagið setur á útlit kvenna. Sérstaklega er Örnu hugleikin mótsagnakennd viðhorf til hárvaxtar kvenna þar sem þær leitast oftar en ekki við að hafa þykkt og mikið hár á höfði en að sama skapi þykir snyrtilegt að fjarlægja öll önnur líkamshár. Margar spurningar vakna hjá hönnuði í sambandi við viðfangsefnið og hér fæst Arna við að blanda saman hefðbundnu skrauti og prjáli við hár og setur þannig líkamshár í nýtt samhengi sem eins konar prýði kvenna. Óteljandi háralykkjur, perlur og annað efni er notað í textílinn, en hönnuðurinn situr löngum stundum við að bródera og vinna hárin sem að lokum eru fest við efnið. Samhliða þessu skissar Arna og gerir litlar textilprufur en einnig þykir hönnuði spennandi að beita saumnálinni á efnisstrangann líkt og um málarastriga og pensil væri að ræða.
Arna hefur tekið þátt í samsýningum erlendis en hluti af þessari sýningu fór á samsýningu fatahönnuða í Philip Stark safninu í Bilbao, Spáni.
Sýningin stendur til 18. október og er opin alla daga frá kl. 12.00-17.00, ókeypis aðgangur.
Nánari upplýsingar veitir Arna Atladóttir í síma 865-6272, arnaatla@gmail.com