Íslensk Náttúra

Íslenska landslagið hefur verið eitt vinsælasta viðfangsefni íslenskra málara.  Gömlu meistararnir tjá sig í sínum olíulandslagsverkum og sýna fjallasýn, menn til sjós eða sveitarómantík.  
Hér er tekist á við hið stórfellda landslag á Íslandi, fjallgarðar, jöklar, víðáttan, Þingvellir og sjálf Hekla. Fjallið kemur hér oftast fyrir í miðjum striganum eða einhvers staðar í bakgrunninum.