Hafliðaverkefnið

Samtvinnun tónlistar og myndlistar

Kveikjan að verkefninu Samtvinnun tónlistar og myndlistar var sú að  Listasafni Reykjanesbæjar barst  s.l. haust vegleg listaverkagjöf frá Hafliða Hallgrímssyni tónskáldi sem búið hefur í Skotlandi um árabil.  Hafliði er eins og margur listamaðurinn, hagur á fleiri en eina listgrein og ásamt því að vera eitt af fremstu tónskáldum þjóðarinnar hefur hann iðkað myndlist um árabil. Gjöfin samanstóð af 7 málverkum og 14 grafíkverkum, nánar tiltekið silkigrafík og öll verkin voru abstrakt. 

Verkefnið gekk út á að halda sérstakt námskeið eða vinnusmiðju með ungu fólki í Reykjanesbæ í tengslum við Listahátíð barna í maí, þar sem unnið væri með tengingu tónlistar og myndlistar og listaverk Hafliða, bæði myndverk og tónverk, yrðu lögð fram sem kveikja. Unnið var með nemendum bæði í tónlist og myndlist og áhersla lögð á tónsmíðar og gerð myndverka.  Sérmenntaðir leiðbeinendur voru fengnir til að vinna með unga fólkinu, annars vegar tónskáld og tónlistarkennarar frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og hins vegar myndlistarmenn og myndlistarkennarar frá Listasafni Reykjanesbæjar og þremur grunnskólum bæjarins.  Hóparnir unnu svo ýmist einir eða allir saman í rúma tvo mánuði og var afraksturinn kynntur með uppákomu í Bíósal Duus Safnahúsa laugardaginn 6.maí kl. 13.00 þar sem Hafliði sjálfur var mættur.

Hafliði Hallgrímsson var kynntur og opnuð samsýning á málverkum hans og myndverkum unga fólksins sem unnin voru á tímabilinu.  Einnig  var leikin tónlist eftir Hafliða og úrval af þeim tónverkum sem samin voru  á námskeiðinu.  Uppákomunni lauk svo með gjörningi þar sem tónlistarnemendur túlkuðu valið verk eftir Hafliða í frumsaminni tónlist og á sama tíma túlkuðu   myndlistarnemendur tónlist samnemendanna í myndverkum. Þetta var liður í Listahátíð barna í Reykjanesbæ og hlaut verkefnið styrk frá Uppbyggingarsjóði Suðurnesja. Sýningin stendur til 9.júlí.

Sýningarstjóri er Inga Þórey Jóhannsdóttir.