Eitt ár á Suðurnesjum - ljósmyndasýning

Tjáum líf okkar í myndum – Ljósanætursýningin 2018

Listasafn Reykjanesbæjar og Norræna húsið í Færeyjum verða í samstarfi með stóra  ljósmyndasýningu sem haldin verður á Ljósanótt 2018 í nokkrum sýningarsölum Duus Safnahúsa. Færeyingar leggja til sýninguna „Föroyar i et år“ sem samanstendur af rúmlega 600 ljósmyndum sem íbúar eyjanna tóku og lýsa daglegu lífi þeirra í eitt ár á sama tíma og ljósmyndasýningin „Eitt ár á Suðurnesjum“ verður opnuð í Listasal Duus Safnahúsa.

Listasafn Reykjanesbæjar býður öllum þátttöku í Ljósanætursýningu safnsins haustið 2018 „Eitt ár á Suðurnesjum“.  Hvað hefur gerst á árinu? Safnaðu saman ljósmyndunum þínum sem teknar voru á Suðurnesjum á tímabilinu 17. júní 2017 til 17. júní 2018.

Hver og ein myndanna segir sína sögu af lífi þínu á árinu og saman segja allar innsendar myndir, allra þátttakenda eina góða sögu af daglegu lífi á Suðurnesjum. Allar myndir boðnar velkomnar sem teknar eru á Suðurnesjum á þessu tímabili.  Hvað gerðist á Suðurnesjum þetta ár? Hvað vorum við að gera? Börnin og gamla fólkið, fólkið og dýrin, hversdagurinn og hátíðarhaldið, pólitíkin og trúarbrögðin, bæjarlífið og náttúran, fjölskyldan og  vinnan eða hvað annað sem talist gæti hluti af okkar daglega lífi. Nánari upplýsingar um skil verða auglýstar vel eftir áramótin.

Hver og einn má senda inn mest 10 myndir. Þar sem myndirnir eru hugsaðar á sýningu er nauðsynlegt að þær séu í mjög góðri upplausn svo möguleiki sé á að prenta þær út í góðri stærð. Því er æskilegt að myndirnar séu ekki minni en 4 MB en þó er hægt að hlaða inn myndum í öllum stærðum. Skilafrestur er til 1. júlí 2018. Allar innsendar myndir verða sýndar á Ljósanætursýningunni, þær bestu útprentaðar en hinar á skjám.

Smelltu hér til að hlaða inn myndum. 

Athugið að einungis er hægt að hlaða inn þremur myndum í einu og síðan er hægt að endurtaka leikinn þar til 10 myndum hefur verið hlaðið inn.