Dans elementanna.

Laugardaginn 19. janúar var opnuð sýning á nýjum olíumálverkum Daða Guðbjörnssonar í Listasafni Reykjanesbæjar og ber sýningin heitið Dans elementanna.  Daði er einn af þekktustu listamönnum landsins og hefur haldið fjölda sýninga hér heima og erlendis.  Hann nam myndlist við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og við Ríkisakademíuna í Amsterdam.  
Í texta Kristínar G. Guðnadóttur í sýningarskránni sem gefin er út af þessu tilefni segir m.a.:  “Elementin fjögur eða höfuðskepnurnar – vatn, loft, jörð og eldur eru áberandi í nýjum verkum Daða og skapa umgjörð eða leiksvið táknanna í formi landslags eða margræðs myndrýmis.”

Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar er  í Duushúsum.  Þar er opið alla daga frá kl. 11.00-17.00 og aðgangur er ókeypis.  Sýningin Dans elemetanna stendur til 9. mars.