Föstudaginn 2. september 2005 opnaði Listasafn Reykjanesbæjar sýninguna “Eiríkur Smith og konurnar í Baðstofunni”. Á sýningunni mátti sjá tæplega 50 verk eftir Eirík og fimm fyrrverandi nemendur hans í Baðstofunni, þær Ástu Árnadóttur, Ástu Pálsdóttur, Sigríði Rósinkarsdóttur, Soffíu Þorkelsdóttur og Þórunni Guðmundsdóttur. Eiríkur sýndi olíuverk en listakonurnar vatnslitamyndir. Baðstofan er rúmlega 30 ára gamalt menningarfélag í Reykjanesbæ og kenndi Eiríkur hópnum myndlist í rúman áratug. Þess má geta að þessi hópur fékk Menningarverðlaun Reykjaensbæjar, Súluna, árið 2002. Í sýningarskrá segir Aðalsteinn Ingólfsson: “Við höfuðborgarbúar erum einatt nokkuð svo sjálfhverfir, a.m.k. þegar menningin er annars vegar, teljum að fátt markvert geti átt sér stað á landinu án þess að fulltrúar okkar komi þar við sögu með einum eða öðrum hætti. Hins vegar er iðulega horft framhjá því að mótttökuskilyrði fyrir menninguna verða að vera fyrir hendi í héraði, annars er hætt við að sendingar frá höfuðborginni falli í grýttan jarðveg. Þar stuðla ýmiss konar grasrótarsamtök, kórar, klúbbar og listafélög, að félagslegum og menningarlegum þroska íbúanna.”
Eiríkur Smith og konurnar í Baðstofunni
- Eiríkur Smith (1925 - 2016) ,
- Ásta Árnadóttir ,
- Ásta Pálsdóttir ,
- Sigríður Rósinkransdóttur ,
- Soffía Þorkelsdóttir og
- Þórunn Guðmundsdóttir