
Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar er í Duushúsum, Menningar- og listamiðstöð Reykjanesbæjar. Safnið er opið virka daga frá kl. 11 - 17 og um helgar frá kl. 13 - 17.
Í Duushúsum er einnig að finna sýninguna Bátafloti Gríms Karlssonar og sýningu Byggðasafns Reykjanesbæjar, "Völlurinn, nágranni innan girðingar" sem fjallar um störfin á vellinum og áhrifin á mannlífið. Elsti bíósalur landsins var opnaður á Ljósanótt 2006. Í Listasalnum er boðið upp á myndlistarsýningar á vegum Listasafns Reykjanesbæjar.
Aðgangseyrir er enginn fyrir alla almenna gesti á opnunartíma safnsins. Hópar geta pantað leiðsögn utan opnunartíma og greiðast þá kr. 20.000 fyrir hópinn. Nánari upplýsingar í síma 421 3796.