Framlag Listasafns Reykjanesbæjar til Listahátíðar 2010 er sýningin Efnaskipti eða Metabolism,sem er samvinnuverkefni safnsins og fimm myndlistarkvenna: Önnu Líndal, Guðrúnar Gunnarsdóttur, Hildar Bjarnadóttur, Hrafnhildar Arnardóttur og Rósu Sigrúnar Jónsdóttur. Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson.
Á sýningunni er að finna fimm innsetningar úr blönduðum efnum, mjúkum efnum, aðskotahlutum, ljósmyndum, plastefnum, myndböndum o.fl. Í verki Önnu Líndal eru „viðgerðin" og hugmyndir henni tengdar í aðalhlutverki. Um verkið segir Anna: „Viðgerðin er áþreifanleg heimild um samskipti einstaklings við hlut úr umhverfi sínu. Þetta eru persónuleg samskipti sem mótast á mismunandi hátt hjá þjóðum." Guðrún Gunnarsdóttir sýnir veggmynd sem snýst um þær fiskitegundir sem veiðast úti fyrir Reykjanesi. Hún segir: „Fiskiveiðar eru oftast tengdar karlmönnum, en mig langaði til að tengja fiskinn við hið kvenlega, svo sem útsaum, léttleika." Hildur Bjarnadóttir gerir tvíþætt verk, annars vegar innsetningu sem hverfist um spunavél frá gamla Bændaskólanum í Ólafsdal, hins vegar smærri innsetningu um íslenskan rokk frá Brennistöðum og köttinn Dúsu sem er heimilisföst í húsakynnum Listasafns Reykjanesbæjar. Framlag Hrafnhildar Arnardóttur er innsetning úr plasti og mjúkum gerviefnum sem er eins konar tilbrigði við eldgos og hraunrennsli. Innsetning Rósu Sigrúnar Jónsdóttur heitir Lífgrös, og er margbrotin hugleiðing um hamingjuna og íslensk grös