Nemendur í Listaskóla barna sumarið 2003Listaskólinn er tilraun til að skapa börnum í sveitarfélaginu tækifæri til þátttöku í listrænu og skapandi starfi.

SUMARSTARF

Listaskólinn hefur staðið fyrir þriggja vikna sumarnámskeiðum fyrir börn á aldrinum 7 - 13 ára í samstarfi við Félag myndlistarmanna í Reykjanesbæ og Leikfélag Keflavíkur. Höfuðstöðvar sumarnámskeiða Listaskólans eru í Svarta pakkhúsinu, Hafnargötu 2, en jafnframt er notuð aðstaða í Frumleikhúsinu að Vesturbraut 17.

Í Svarta pakkhúsinu er lögð áhersla á myndræna tjáningu á fjölbreytilegan hátt.
Í Frumleikhúsinu er leikræn tjáning hins vegar í fyrirrúmi. Þar setja börnin upp leikþætti, dansa, syngja og segja frá.

Farið er víða um bæinn og leitað fanga til listrænnar sköpunar. Söfnin eru skoðuð, styttur bæjarins athugaðar og farið á nokkra staði sem eru merkilegir út frá sögu- eða menningarlegu sjónarhorni.

Hverju námskeiði hefur lokið með Listahátíð barna í Frumleikhúsinu þar sem foreldrum og öðrum gestum er boðið að sjá afrakstur starfsins.

VETRARSTARF

Listaskólinn starfar nú einnig á veturna og verður starfsemin í námskeiðsformi þar sem hvert námskeið verður augýst sérstaklega.
Vetrarstarfið býður þannig upp á afmörkuð viðfangsefni fyrir smærri hópa, á breiðari aldri eða frá 10 - 16 ára.


Vetrarstarfið er unnið í samstarfi við Félag myndlistarmanna í Reykjanesbæ.

Listaskólinn
listaskolinn@reykjanesbaer.is